Hin fullkomna nautasteik
800 g nautakjöt, t.d.rib eye eða sirloin
sjávarsalt og pipar
2 tsk extra virgin olía
3 msk smjör
2 hvítlauksrif, afhýdd
fersk steinselja, á stilkum
- Saltið og piprið nautakjötið á einni hlið.
- Hitið pönnu þar til hún er orðin mjög heit. Setjið olíu á hana og leggið því næst nautakjötið á pönnuna, krydduðu hliðina niður. Saltið og piprið hliðina sem snýr upp. Látið vera í 2 mínútur.
- Snúið steikinni við með töngum (ekki gaffli) og bætið smjöri hvítlauk og steinselju saman við. Steikið í 2 mínútur og penslið steikina allan tímann með smjörinu. Þegar þessar tvær mínútur eru liðnar snúið steikinni við á hvorri hlið í um 30 sek þar til steikin er steikt eins og þið óskið. Fyrir medium rare steik eru heildar steikingartíminn um 5-6 mínútur. Fyrir meðal til vel steikt er um 10 mínútur í heildina. Athugið einnig að steikin heldur áfram að eldast eftir að hún er tekin af pönnunni. Penslið einu sinni að lokum, takið af pönnunni og setjið á skurðarbrenni.
Ég bar hana fram með aspas, bernaise og kartöflubátum…jummmí!
You need to add a widget, row, or prebuilt layout before you’ll see anything here. 🙂