Nautalund með spennandi meðlæti (fyrir 4)
- 850 g nautalund
- 4 msk salvía, smátt söxuð
- Salt og pipar
- 8 þunnar skífur af serrano skinku
- Kjötsnæri
- 25 g smjör
Fenniku-peru-salat:
- 1 stór fennika
- 1 pera, gjarnan Clara Friis
- 30 g valhnetur
- 50 g spínat
- Handfylli þurrkuð trönuber
- ½ msk dijonsinnep
- 1 tsk hunang
- 1 msk sítrónusafi
- 3 msk valhnetuolía eða mild ólífuolía
Annað:
- 1 kg kartöflur
- 24 lárviðarlauf
- Olía, salt og pipar
Aðferð:
- Stráið salvíu, salti og pipar yfir kjötið. Vefjið serrano skinkunni utan um kjötið og kjötsnærinu til að skinkan haldist.
- Brúnið kjötið á pönnu upp úr smjöri og leggið í eldfast mót inn í kaldan ofn. Stillið ofninn á 100° og leyfið kjötinu að steikjast í 20 mínútur. Kjöthitinn á að vera um 53°.
- Setjið álpappír yfir kjötið og leyfið því að hvíla.
- Skerið fennikuna mjög þunnt, jafnvel með rifjárni. Skerið peruna í litla teninga eða þunnar skífur. Hakkið hneturnar gróflega. Blandið fenniku, peru, hnetum, spínati og trönuberjum í skál.
- Pískið sinnep, hunang, olíu, salt og pipar saman og blandið út í salatið.
- Skerið kartöflurnar til helminga og leggið á bökunarpappír á bökunarplötu og dreypið olíu yfir. Leggið eitt lárviðarlauf ofan á hverja kartöflu og saltið og piprið.
- Berið fram kjötið með salati og kartöflum. Athugið að nota má kraftinn úr kjötinu í sósu.