Uppskrift 2

  • 800 grömm ungnautalund
  • 1 bakki sveppir (ég notaði kastaníusveppi)
  • 2 msk Dijon sinnep
  • 6 sneiðar parmaskinka eða serranoskinka
  • 4 plötur smjördeig (eða nóg til að hylja lundina)
  • Smjör, sjávarsalt og nýmalaður svartur pipar
  • 1 egg

Aðferð: Byrjið á að taka kjötið og snyrta það til. Stundum eru sinar utan á svona lundum sem þarf að taka af. Mín lund var þó nánast laus við sinar. Þerrið lundina og saltið og piprið hana vel á öllum hliðum. Þar sem lundir eru mjórri í annan endann er gott að brjóta þynnri endann undir kjötið þannig að stykkið sé allt um það bil jafn þykkt.